Nefnd á vegum UEFA tók í gær ákvörðun um að úrslitaleikur Meistaradeildarinnar 2027 verði ekki á San Siro leikvanginum í Mílanó.
Búið var að taka ákvörðun í maí síðastliðnum að úrslitaleikurinn 2027 yrði á San Siro.
En það er möguleiki að það verði byggingarvinna í kringum San Siro á þessum tíma. Það var allavega ekki hægt að fullvissa um annað.
UEFA hefur því ákveðið að leikurinn fari ekki fram á San Siro og er ferlið að velja nýja leikvang hafið.
Það er talið að nýr leikvangur verði valinn fyrir maí 2025.
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar á yfirstandandi tímabil fer fram í München og næst fer hann fram í Búdapest.
Athugasemdir