Albert Guðmundsson er í liði vikunnar í ítölsku úrvalsdeildinni eftir að hafa skorað tvö mörk í frumraun sinni með Fiorentina.
Albert er í fremstu víglínu í liði vikunnar ásamt Artem Dovbyk úr Roma og Duvan Zapata úr Torino.
Albert er í fremstu víglínu í liði vikunnar ásamt Artem Dovbyk úr Roma og Duvan Zapata úr Torino.
Albert gerði bæði mörk Fiorentina í 2-1 sigri liðsins á Lazio síðasta sunnudag.
Hann gekk í raðir Fiorentina frá Genoa á láni út tímabilið, en félagið mun kaupa hann á næsta ári ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
Fiorentina var marki undir í hálfleik eftir að Mario Gila kom boltanum í netið undir lok hálfleiksins en Albert kom inn í hálfleik og tók hann aðeins tvær mínútur að fiska vítaspyrnu. Hann fór sjálfur á punktinn, sendi Ivan Provedel í vitlaust horn og skoraði.
Albert kom inn með mikil gæði og var besti maður Flórensarliðsins, en hann kórónaði frábæra frammistöðu sína með öðru vítaspyrnumarki undir lok leiks er Nuno Tavares braut á Dodo í teignum.
La ???????????????? ???????? della 5ª giornata ????????@Fantacalcio pic.twitter.com/icpYRnITkq
— Lega Serie A (@SerieA) September 25, 2024
Athugasemdir