Það hefur komið í ljós hversu lengi franska stórstjarnan Kylian Mbappe verður frá eftir að hafa meiðst í 3-2 sigri Real Madrid gegn Alaves í gær.
Mbappé skoraði annað mark leiksins eftir laglegt samspil við Jude Bellingham og var skipt útaf á 80. mínútu, þegar staðan var 3-0 fyrir heimamenn í Madríd.
Mbappé var skipt af velli því hann fann fyrir smávægilegum óþægindum í nára.
Hann fór í skoðun í morgun og verður hann frá næstu þrjár vikurnar.
Hann mun missa af leikjum gegn Atletico Madrid og Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni, og gegn Lille í Meistaradeildinni.
Athugasemdir