Fyrrum Stjörnumaðurinn Alexander Scholz er að yfirgefa Urawa Reds í Japan eftir þrjú ár hjá félaginu.
Hann er á leið til Katar þar sem hann kemur til með að ganga í raðir Al-Wakrah. Mun hann líklega þéna ágætis pening þar.
Hann er á leið til Katar þar sem hann kemur til með að ganga í raðir Al-Wakrah. Mun hann líklega þéna ágætis pening þar.
Scholz hefur átt mjög góðan tíma með Urawa Reds og var hann í liði ársins í Japan í fyrra.
Scholz er 31 árs gamall miðvörður sem lék eftirminnilega með Stjörnunni árið 2012. Hann var frábær tímabilið sem hann spilaði hér á Íslandi.
Í kjölfarið lék hann með Lokeren, Standard Liege og Club Brugge í Belgíu. Hann spilaði svo með Midtjylland í Danmörku frá 2018 til 2021, en síðustu þrjú árin hefur hann spilað í Japan við góðan orðstír.
Athugasemdir