Heimild: RÚV
Birkir Már Sævarsson leikmaður Vals varð fyrir því óláni að meiðast þegar Valur tapaði í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn KA á Akureyri í gær.
Lestu um leikinn: KA 3 - 2 Valur
Birkir var spurður út í meiðslin í viðtali á Rúv eftir leikinn.
„Ég fékk aftan í læri, þetta virtist eins og þetta gæti mögulega verið tognun. Ég hef ekki lent í þessum meiðslum áður. Þetta virðist ekki líta neitt sérstaklega vel út," sagði Birkir Már.
Arnar Grétarsson þjálfari Vals minntist einnig á meiðslin hjá Birki í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn þar sem hann var hræddur um að um tognun hafi verið að ræða.
KA vann leikinn 3-2 en Birkir Már skoraði seinna mark Vals og var óheppinn að ná ekki að jafna metin stuttu síðar.
Athugasemdir