Austria 1 - 2 Turkey
0-1 Merih Demiral ('1 )
0-2 Merih Demiral ('59 )
1-2 Michael Gregoritsch ('66 )
Tyrkland er komið áfram í 8-liða úrslit á EM eftir sigur á Austurríki í kvöld.
Merih Demiral var hetja liðsins en hann kom liðinu yfir eftir vandræðagang í vörn Austurríkis eftir hornspyrnu.
Hann var ansi sterkur varnarlega í leiknum og hélt áfram að ógna í hornum. Eftir klukkutíma leik skallaði hann boltann í netið eftir hornspyrnu frá Arda Guler og kom liðinu í 2-0.
Stuttu síðar minnkaði Gregoritsch muninn með marki eftir enn eina hornspyrnuna.
Mert Gunok markvörður Tyrkja gulltryggði liðinu svo sigurinn þegar hann varði skalla frá Christoph Baumgartner á lokasekúndum leiksins.
Einn svakalegasti leikur mótsins var í kvöld þegar Tyrkir komust áfram í 8-liða úrslit á kostnað Austurríkismanna. Markvarsla Mert Gunok í uppbótartíma var í heimsklassa???????? pic.twitter.com/DXYKri59Lx
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 2, 2024