Khephren Thuram er á leið til Juventus frá Nice en frá þessu greinir Fabrizio Romano.
Thuram hefur verið orðaður við félög í úrvalsdeildinni en er nú á leið til Ítalíu fyrir 25 milljónir evra. Hann mun skrifa undir fimm ára samning.
Hann er 23 ára gamall franskur miðjumaður og er því annar miðjumaðurinn sem Juventus bætir við sig á stuttum tíma eftir að Douglas Luiz gekk til liðs við félagið frá Aston Villa.
Thuram er yngri bróðir Marcus Thuram leikmanns Inter og sonur frönsku goðsagnarinnar Lilian Thuram.
Athugasemdir