Sevilla er í viðræðum við Arsenal um Albert Sambi Lokonga en hann er líklega á leið á láni til spænska félagsins.
Lokonga hefur ekki verið í plönum Arteta undanfarin ár en þessi 24 ára gamli belgíski miðjumaður gekk til liðs við félagið frá Anderlecht árið 2021.
Hann var lánaður til Crystal Palace í janúar 2023 og svo spilaði hann á láni hjá Luton á síðustu leiktíð.
Fabrizio Romano greinir frá því að Lokonga sé spenntur fyrir því að fara til Spánar en félögin eru í viðræðum þar sem mögulegt kaupverð eftir að lánssamningi hans lýkur er til umræðu.
Athugasemdir