Bayern Munchen er að ganga frá kaupum á hinum portúgalska Joao Palhinha frá Fulham. Það er Sky í Þýskalandi sem greinir frá.
Kaupin voru nánast gengin í gegn síðasta haust en tæknilegir örðugleikar urðu þess valdandi að Palhinha gat ekki skipt yfir til Þýskalands og tók því ár til viðbótar á Englandi.
Palhinha er varnarsinnaður miðjumaður, byrjunarliðsmaður í portúgalska landsliðinu.

Kaupverðið er 47,4 milljónir punda sem verður metsala hjá Fulham. Palhinha verður 29 ára í næstu viku og var hann að ljúka sínu öðru tímabili með Fulham.
Athugasemdir