Holland er komið áfram í 8-liða úrslit á EM eftir öruggan sigur á Rúmeníu í dag.
Cody Gakpo skoraði eitt og lagði upp annað og Donyell Malen skoraði tvö mörk.
Gakpo kom liðinu yfir og lagði upp annað markið með glæsibrag á Malen.
Malen skoraði síðan þriðja markið í uppbótatíma þegar hann komst í gegn eftir skyndisókn. Það vakti athygli að einhver hafði kastað skóm inn á völlinn og láu þeir inn á teignum hjá Rúmeníu. Florin Nita markvörður Rúmena sparkaði öðrum frá rétt áður en Malen innsiglaði sigur Hollendinga.
Hollendingar verðskuldað áfram í 8-liða úrslit eftir 3-0 sigur á Rúmeníu. Svona voru mörkin?? pic.twitter.com/IxcDZUQfQr
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 2, 2024
Athugasemdir