Tyrkland mætir Hollandi í lokaleik átta liða úrslitanna eftir að Tyrkland lagði Austurríki og Holland lagði Rúmeníu í dag.
Varnarmaðurinn Merih Demiral lagði grunninn að sigri Tyrklands með því að skora tvö mörk eftir hornspyrnu. Fyrra markið strax á fyrstu mínútu og það seinna eftir klukkutíma leik.
Það var hins vegar markvörðurinn Mert Gunok sem innsiglaði sigur liðsins með stórkostlegri markvörslu í uppbótatíma í seinni hálfleik.
Sjáðu allt það helsta úr leiknum hér fyrir neðan.
Einn svakalegasti leikur mótsins var í kvöld þegar Tyrkir komust áfram í 8-liða úrslit á kostnað Austurríkismanna. Markvarsla Mert Gunok í uppbótartíma var í heimsklassa???????? pic.twitter.com/DXYKri59Lx
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 2, 2024
Athugasemdir