Man City býr sig undir tilboð frá Sádi-Arabíu - Marseille bjartsýnt á að fá Greenwood - Barcelona leiðir í baráttu um Williams
banner
   mið 03. júlí 2024 11:46
Elvar Geir Magnússon
Allir Englendingarnir æfðu - Shaw spjallar við fréttamenn í dag
Frá æfingu Englands í morgun. Stones er teipaður um hægri fótinn.
Frá æfingu Englands í morgun. Stones er teipaður um hægri fótinn.
Mynd: Getty Images
Allir leikmenn enska landsliðshópsins æfðu með liðinu í morgun; þar á meðal Luke Shaw, John Stones og Kieran Trippier.

Stones æfði hinsvegar með áberandi umbúðir utan um hægra hné sitt. Miðvörðurinn varð fyrir meiðslum gegn Slóvakíu en hefur sagt að hann verði hinsvegar klár á laugardag þegar leikið verður gegn Sviss í 8-liða úrslitum.

Trippier hefur líka sagst verða klár í þann leik en hann fékk högg á hnéð og var tekinn af velli gegn Slóvökum.

Það er þó mögulegt að Shaw, sem hefur ekkert spilað fyrir land og lið síðan um miðjan febrúar, spili á laugardaginn. Hann hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri en mun ræða við fréttamenn síðar í dag.

Búist er við því að Ezri Konsa komi inn í vörn Englands á laugardaginn, í stað Marc Guehi sem er í banni.

Spilamennska enska landsliðsins á EM hefur ekki verið góð en þrátt fyrir það vann liðið riðil sinn, lagði Slóvaka og er núna einum leik frá undanúrslitum mótsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner