Holland er komið áfram í 8-liða úrslit á EM eftir öruggan sigur á Rúmeníu.
Hollenska liðið fékk mikla gagnrýni heima fyrir eftir erfiða riðlakeppni þar sem liðið endaði í 3. sæti síns riðils.
Virgil van Dijk fyrirliði hollenska liðsins var stoltur í leikslok.
„Eftir annasama viku, þar sem ýmislegt var látið flakka, urðum við að sýna eitthvað og við gerðum það. Við gagnrýnum okkur sjálfa og vissum að við þurftum að gera mun betur eftir síðasta leik og allir þurftu að taka ábyrgð og við sýndum í dag að við vildum þetta," sagði Van Dijk.
Holland mætir Tyrklandi þann 6. júlí í átta liða úrslitunum.
Athugasemdir