Rúmenía 0 - 3 Holland
0-1 Cody Gakpo ('20 )
0-2 Donyell Malen ('83 )
0-3 Donyell Malen ('90 )
Holland var með þónokkra yfirburði þegar liðið mætti Rúmeníu í 16-liða úrslitum á EM í dag.
Munurinn var þó bara eitt mark í hálfleik en Cody Gakpo skoraði markið með föstu skoti á nærstöngina.
Yfirburðir Hollendinga héldu áfram í seinni hálfleik en Gakpo kom boltanum aftur í netið eftir klukkutíma leik en markið dæmt af vegna rangstöðu.
Gakpo var ekki hættur en hann komst af miklu harðfylgi inn á teig Rúmena og sendi boltann út á Donyell Malen sem skoraði annað mark liðsins.
Malen var ekki hættur en hann brunaði upp með boltann í skyndisókn í uppbótatíma og skoraði og innsiglaði sigur Hollendinga.
Hollendingar verðskuldað áfram í 8-liða úrslit eftir 3-0 sigur á Rúmeníu. Svona voru mörkin?? pic.twitter.com/IxcDZUQfQr
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 2, 2024