Hin bráðefnilega Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir var hetja Vals í kvöld þegar liðið vann 1-0 sigur gegn Þrótti í Bestu deild kvenna. Hún gerði sigurmarkið undir lokin.
Ragnheiður, sem er fædd árið 2007, byrjaði leikinn og stóð sig vel. „Tilfinningin er mjög góð og það var gott að ná marki inn," sagði hún eftir leikinn.
Ragnheiður, sem er fædd árið 2007, byrjaði leikinn og stóð sig vel. „Tilfinningin er mjög góð og það var gott að ná marki inn," sagði hún eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 0 Þróttur R.
„Það var bara mjög góð tilfinning (að sjá boltann í netinu)," sagði Ragnheiður jafnframt.
Ragnheiður Þórunn er ein efnilegasta fótboltakona landsins en hún gekk í raðir Vals frá Haukum í vetur. Hún byrjaði að spila með meistaraflokki Hauka sumarið 2022 en hún var frábær í 2. deild í fyrra.
„Það er mjög gaman að vera í Val. Það eru mjög skemmtilegar stelpur hérna og geggjaðir þjálfarar. Ég er mjög ánægð," sagði sóknarmaðurinn ungi en hún var með aðra möguleika áður en hún valdi Val. Hún fór meðal annars á reynslu til þýska stórliðsins Wolfsburg.
„Þetta er stórt skref en ég er að komast inn í þetta. Hér eru stór nöfn og það er mjög gaman. Það voru einhverjir aðrir möguleikar en mér leist best á Val. Það er mikill metnaður hérna. Ég vildi fyrst taka stærra skref á Íslandi."
„Ég vil komast eins langt og hægt er," sagði Ragnheiður að lokum en hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir