Man City býr sig undir tilboð frá Sádi-Arabíu - Marseille bjartsýnt á að fá Greenwood - Barcelona leiðir í baráttu um Williams
   mið 03. júlí 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
3. deild: Árbær upp að hlið Kára
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árbær komst upp að hlið Kára við toppinn í 3. deild með sigri á Elliða í gær.

Jordan Chase Tyler kom Árbæ yfir snemma leiks en forystan var ekki langlíf þar sem Jóhann Andri Kristjánsson jafnaði metin stuttu síðar.

Það var svo Marko Panic sem innsiglaði sigur Árbæjar með tveimur mörkum undir lok fyrri hálfleiks.

Árbær er í 2. sæti með 20 stig eins og Kári sem er á toppnum en á leik til góða gegn Augnabliki í kvöld. Elliði er í 6. sæti með 13 stig.


3. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Kári 10 7 2 1 34 - 16 +18 23
2.    Víðir 10 6 3 1 33 - 13 +20 21
3.    Árbær 10 6 2 2 23 - 18 +5 20
4.    Augnablik 10 6 0 4 25 - 16 +9 18
5.    Magni 10 4 3 3 12 - 13 -1 15
6.    KFK 10 5 0 5 21 - 24 -3 15
7.    Elliði 10 4 1 5 16 - 25 -9 13
8.    ÍH 10 3 2 5 25 - 29 -4 11
9.    Sindri 10 3 1 6 19 - 20 -1 10
10.    Vængir Júpiters 10 3 1 6 22 - 27 -5 10
11.    Hvíti riddarinn 10 3 1 6 14 - 26 -12 10
12.    KV 10 2 0 8 13 - 30 -17 6
Athugasemdir
banner
banner
banner