Bryndís Rut Haraldsdóttir fyrirliði Tindastóls var svekkt eftir naumt tap gegn Breiðabliki á Sauðárkróki í kvöld.
Lestu um leikinn: Tindastóll 0 - 1 Breiðablik
„Mér hefði fundist sanngjarnt að fá eitt stig út úr þessu miðað við færin sem við fáum og hvernig leikurinn spilaðist," sagði Bryndís Rut.
„Þær voru góðar fyrstu tíu mínúturnar en svo snýst þetta við. Þær voru farnar að tefja snemma og það sýnir hvernig leikurinn spilaðist."
Næsti leikur liðsins er gegn Stjörnunni á Sauðárkróki.
„Taka þessa orku með okkur áfram, baráttuna og spilamennskuna og þá fellur þetta með okkur," sagði Bryndís Rut.
„Og klára færin," bætti hún við létt í bragði.
Athugasemdir