Manchester United hefur gefið út nýjan heimabúning sem lið félagsins munu spila í á næstu leiktíð.
Framan á búningnum er nýr styrktaraðili, Snapdragon frá Qualcomm Technologies. Um er að ræða tæknirisa sem bjó til hina byltingakenndu Snapdragon tölvuflögu sem er notuð af helstu farsíma- og tölvuframleiðendum tækniiðnaðarins.

Búningurinn er frekar einfaldur en Adidas framleiðir hann enn eitt árið.
Man Utd hafnaði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en félagið vonast eflaust til að það muni ganga aðeins betur í þessum nýju búningum á næsta tímabili.
Hér fyrir neðan má sjá myndband sem Man Utd gaf út þegar búningurinn var kynntur.
A new kit. A new era.
— Manchester United (@ManUtd) July 1, 2024
Presenting our 2024/25 home kit ????#MUFC || @adidasFootball
Athugasemdir