Tom Heaton hefur framlengt samning sinn við Manchester United um eitt ár.
Samningur Heaton rann út núna um síðustu mánaðamót en hann er núna búinn að framlengja.
Samningur Heaton rann út núna um síðustu mánaðamót en hann er núna búinn að framlengja.
Hann spilaði ekkert á síðasta tímabili hjá United en hann var þriðji markvörður liðsins á eftir Andre Onana og Altay Bayindir.
Heaton er núna á EM í Þýskalandi þar sem hann er með sem æfingamarkvörður. Hann fór ekki sem einn af 26 leikmönnum í hópnum, heldur til þess að verða fjórði markvörður á æfingum liðsins.
Heaton á að baki þrjá landsleiki, lék þá á árunum 2016-17. Hann er 38 ára og hefur leikið með Man Utd frá 2021.
Athugasemdir