Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 02. nóvember 2022 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arteta svarar: Ég er gríðarlega ánægður hjá Arsenal
Ánægður.
Ánægður.
Mynd: Getty Images
Það eru sögur á kreiki um að Barcelona sé að horfa til Mikel Arteta ef félagið fer í stjóraleit.

Fyrrum spænski landsliðsmaðurinn Xavi er í dag stjóri Barcelona en það hefur ekkert gengið sérlega vel hjá honum. Börsungar eru á eftir Real Madrid í deildinni og er liðið fallið úr leik í Meistaradeild Evrópu. Eftir áramót mun Barcelona taka þátt í Evrópudeildinni.

Ef vikið verður frá Xavi og hans hugmyndum, þá mun sjónin beinast að Arteta sem hefur verið að vinna flott starf með Arsenal á Englandi.

Arteta, sem er fertugur að aldri, steig sín fyrstu skref á fótboltaferli sínum með Barcelona og þekkir félagið mjög vel.

Arsenal er sem stendur á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og hefur Arteta fengið mikið hrós fyrir starf sitt hjá Lundúnafélaginu en hann segist vera mjög ánægður hjá Arsenal. Hann svaraði fyrir þennan orðróm á fréttamannafundi í dag.

„Ég er gríðarlega ánægður og stoltur af þeim stað sem ég er á í dag," sagði Arteta við fréttamenn. „Barcelona er með stórgóðan þjálfara sem er algjör goðsögn. Þeir eru á góðri leið."
Athugasemdir
banner
banner
banner