Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 02. nóvember 2022 18:25
Brynjar Ingi Erluson
Martinelli klár í að framlengja við Arsenal - „Þeir þurfa bara að ná í penna“
Gabriel Partinelli
Gabriel Partinelli
Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Gabriel Martinelli hefur mikinn áhuga á því að framlengja samning sinn við Arsenal en hann sagði frá þessu á blaðamannafundi í dag.

Martinelli, sem er 21 árs gamall, kom til Arsenal frá Ituano fyrir þremur árum og hefur verið einn af lykilmönnum enska liðsins síðan.

Hann hefur komið að sjö mörkum í sautján leikjum með Arsenal á þessu tímabili en liðið er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni sem stendur.

Samningur hans við Arsenal rennur út árið 2024 en hann er meira en klár í að framlengja þann samning.

„Ég er mjög ánægður hjá Arsenal og hef sagt það mörgum sinnum,“ sagði Martinelli.

„Þetta er félagið mitt og ég elska að vera hérna. Ég elska borgina, félagið og allt við Arsenal. Ég vil vera áfram og er mjög ánægður. Arsenal þarf bara að ná í pennann,“ sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner