Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 02. nóvember 2022 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Segir að Turner sé of góður til að sitja á bekknum hjá Arsenal
Matt Turner.
Matt Turner.
Mynd: EPA
Brad Friedel, fyrrum markvörður bandaríska landsliðsins, segir að Matt Turner sé alltof góður til þess að sitja á bekknum hjá Arsenal.

Turner var keyptur til Arsenal frá New England Revolution fyrir tímabilið sem núna stendur yfir. Hann var valinn besti markvörður MLS-deildarinnar áður en hann hélt til Englands.

Turner er varamarkvörður fyrir Aaron Ramsdale hjá Lundúnafélaginu en Friedel telur að hann sé alltof góður fyrir það.

„Matt er góður náungi og mjög öflugur markvörður. Ég vona að hann geti farið á láni eða bara alfarið. Hann er of góður til þess að sitja á bekknum," segir Friedel.

Það að Turner sé á bekknum hefur áhrif á það hvort hann verði aðalmarkvörður Bandaríkjanna á HM. Hann er að berjast við Zack Steffen, sem leikur við Middlesbrough, um stöðuna.
Athugasemdir
banner
banner
banner