Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er lokið þetta tímabilið og nú orðið ljóst hvaða sextán lið verða í pottinum á mánudag þegar dregið verður í 16-liða úrslit keppninnar.
AC Milan var síðasta liðið til að tryggja sæti sitt í 16-liða úrslitin með 4-0 sigri á Salzburg.
RB Leipzig er einnig komið í 16-liða úrslit eftir að hafa unnið Shakhtar Donetsk með sömu markatölu.
Dregið verður í 16-liða úrslit á mánudag en drátturinn fer fram í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss og fer hann fram klukkan 11:00 um morguninn.
Þessi lið verða í pottinum
Sigurvegarar í riðlum:
Bayern München
Benfica
Chelsea
Manchester City
Napoli
Porto
Real Madrid
Tottenham
Annað sætið í riðlunum:
AC Milan
Borussia Dortmund
Club Brugge
Eintracht Frankfurt
Inter
Leipzig
Liverpool
Paris Saint-Germain
Athugasemdir