2. flokkur karla hjá ÍA 2. flokkur karla varð í kvöld Íslandsmeistari annað árið í röð og í 10 skiptið alls þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Fylki í Árbænum. Bæði mörk ÍA gerði Sigurður Hrannar Þorsteinsson.
Á sama tíma tapaði Breiðablik fyrir Víkingi R. svo ÍA er níu stigum á undan Blikum þegar tvær umferðir eru eftir af Íslandsmótinu.
Í dag var dregið í Meistaradeild unglingaliða þar sem Skagamenn voru í pottinum eftir Íslandsmeistaratitilinn í fyrra.
ÍA mætir Levadia Tallin frá Eistlandi en leikirnir fara fram 2 og 23. október. Sigurliðið þar mætir síðan sigurliðinu úr viðureign FC Minsk frá Hvíta Rússlandi og Derby frá Englandi í nóvember.
ÍA er einnig í undanúrslitum bikarsins í ár en þjálfarar liðsins eru Sigurður Jónsson og Elinbergur Sveinsson
Athugasemdir