
Margir bíða með mikilli eftirvæntingu eftir leik Englands og Frakklands í 8-liða úrslitum HM á laugardagskvöld.
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21, landsliðs Íslands, er virkilega spenntur fyrir leiknum og hvernig hann mun spilast.
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21, landsliðs Íslands, er virkilega spenntur fyrir leiknum og hvernig hann mun spilast.
„Það verður mjög forvitnilegt að sjá hvernig England - Frakkland spilast því Frakkarnir geta sett sig í hvaða líki sem er. Ætla þeir að leyfa Englendingunum að koma og ætla Englendingar að þora að fara á þá? Út frá þjálfarasjónarmiðinu get ég ekki beðið eftir því að sjá þennan leik þó ég held að hann verði ekki nein flugeldasýning," segir Davíð í HM hringborðinu.
Davíð gæti jafnvel séð Gareth Southgate skipta um kerfi og fara í þriggja miðvarða vörn í leiknum.
„Ég get alveg séð það. Southgate reyni að spila út á Frakkana. Englendingar eru samt heitir og spurning hvort rétt sé að spila eins og þeir hafa gert. Frakkar eru heimsmeistararnir og eru góðir í öllum fösum leiksins."
Þrátt fyrir að missa Ballon d'Or gullboltahafann Karim Benzema í meiðsli rétt fyrir mótið er enginn að tala um það núna. Olivier Giroud hefur spilað óaðfinnanlega í fremstu víglínu.
„Miðað við áföllin; missa Kante, Pogba og Benzema, hvað þeir eru eins smurð vél þó þessir heimsklassa leikmenn detti út. Þeir eru ógnvekjandi og Mbappe er svakalegur," segir Davíð.
Athugasemdir