Thiago Alcantara, fyrrum miðjumaður Barcelona, Liverpool og Bayern, lagði skóna á hilluna í sumar en var ekki lengi að snúa sér aftur að fótboltanum.
Hann fór í starfsnám til Barcelona og var í þjálfarateymi liðsins í nokkrar vikur. Hann þurfti hins vegar að snúa aftur til Englands vegna skattavandamála.
Spænski miðillinn Mundo Deportivo greinir frá því að Hansi Flick vilji fá Thiago í fullt starf í þjálfarateymi liðsins en hann mun snúa aftur til Barcelona í janúar og taka til starfa.
Hann er uppalinn hjá Barcelona en hann lék 101 leik fyrir félagið áður en hann gekk til liðs við Bayern árið 2013. Hann vann spænsku deildina fjórum sinnum með liðinu og Meistaradeildina einu sinni.
Athugasemdir