Mikel Merino, leikmaður Arsenal, varð fyrir því óláni að meiðast stuttu eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Real Sociedad.
Hann axlarbrotnaði á sinni fyrstu æfingu og verður frá í tvo mánuði.
Arteta er gríðarlega spenntur að fá hann út á völl.
„Merino kemur með ótrúlegan fótboltaheila. Hann er snjall, hann er með gæði og kann að nýta sér svæðin," sagði Arteta.
Þá er Merino sjálfur mjög spenntur en Arteta reynir allt til að koma í veg fyrir að Merino fari fram úr sér.
„Við erum að reyna að halda honum í búri því hann hefur verið að ýta á alla. Sjúkraþjálfarana og læknana og bara alla," sagði Arteta.
Athugasemdir