Keflavík og Afturelding mætast í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á Laugardalsvelli í dag klukkan 14:00.
Búið er að opinbera byrjunarlið leiksins.
Búið er að opinbera byrjunarlið leiksins.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 0 Afturelding
Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga gerir þrjár breytingar frá seinni undanúrslitaleik liðsins. Inn í byrjunarliðið koma þeir Sami Kamel, Sindri Snær og Axel Ingi sem var í leikbanni í síðasta leik.
Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar gerir eina breytingu á liði sínu frá síðasta leik.
Arnór Gauti tekur sér sæti á bekknum, í hans stað kemur Elmar Kári Enesson Cogic en Elmar var í leikbanni í síðasta leik.
Byrjunarliðin má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.
Byrjunarlið Keflavík:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
6. Sindri Snær Magnússon
20. Mihael Mladen
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Sami Kamel
24. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
25. Frans Elvarsson (f)
26. Ásgeir Helgi Orrason
28. Kári Sigfússon
50. Oleksii Kovtun
Byrjunarlið Afturelding:
24. Jökull Andrésson (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
7. Aron Jóhannsson
10. Elmar Kári Enesson Cogic
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
19. Sævar Atli Hugason
22. Oliver Bjerrum Jensen
23. Sigurpáll Melberg Pálsson
25. Georg Bjarnason
77. Hrannar Snær Magnússon
Athugasemdir