FIFA hefur dæmt Emiliano Martinez í tveggja leikja bann fyrir að ráðast á myndatökumann í landsleik Argentínu gegn Kólumbíu í undankeppni HM fyrr í þessum mánuði.
Argentína tapaði leiknum 2-1 en eftir leikinn var Martinez að þakka mönnum fyrir leikinn en þegar myndavél kom í áttina að honum brást hann illa við og sló hressilega í hönd myndatökumannsins með þeim afleiðingum að hann mssti hana í jörðina.
FIFA hefur látið argentíska sambandið vita og ekki verður hægt að áfrýja dómnum.
Martinez mun því missa af leikjum Argentínu gegn Venesúela og Bólivíu í undankeppni HM í næsta mánuði.
Athugasemdir