Man Utd orðað við tvo leikmenn Sporting - Hvað verður um Neymar? - Fyrrum lærisveinn Slot orðaður við Liverpool - Nær Arsenal í Vlahovic?
   mán 18. nóvember 2024 11:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sveinn Gísli gerir aftur fjögurra ára samning við Víking
Sveinn Gísli Þorkelsson.
Sveinn Gísli Þorkelsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Sveinn Gísli Þorkelsson hefur framlengt samning sinn við Víking út árið 2028.

Sveinn er leikmaður sem getur bæði spilað sem miðvörður og bakvörður, en hann er fæddur árið 2003 og kom til félagsins frá ÍR árið 2023. Hann hefur síðan leikið 32 leiki fyrir Víking, þar af þrjá í Evrópukeppni og skorað eitt mark.

„Sveinn Gísli er mjög efnilegur hafsent en getur spilað vinstri bakvörð sömuleiðis. Við bindum miklar væntingar við Svein Gísla og það verður gaman að fylgjast með honum vaxa og dafna hér í Hamingjunni næstu árin," segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.

Þetta er í annað sinn sem Sveinn Gísli skrifar undir fjögurra ára samning við Víking en hann gerði það líka 2023.

Sveinn Gísli spilaði tíu leiki með Víkingi í Bestu deildinni síðastliðið sumar en hann sér eflaust fram á að taka stærra hlutverk í náinni framtíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner