Mbeumo, Wirtz, Diomande, Quenda, Nypan, Van Nistelrooy, Cherki og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 21. nóvember 2024 22:20
Brynjar Ingi Erluson
Spænski konungsbikarinn: Orra-lausir Sociedadmenn skoruðu fimm - Alvaro Montejo kom við sögu
Ander Barrenetxea átti stórleik með Sociedad
Ander Barrenetxea átti stórleik með Sociedad
Mynd: Getty Images
Alvaro Montejo kom inn af bekknum hjá Jove
Alvaro Montejo kom inn af bekknum hjá Jove
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spænska liðið Real Soceidad er komið áfram í 2. umferð spænska konungsbikarsins eftir að hafa unnið 5-0 stórsigur á E-deildarliði Jove Espanol í kvöld.

Íslenski landsliðsmaðurinn Orri Steinn Óskarsson var fjarri góðu gamni en hann meiddist í landsleik Íslands og Wales í Þjóðadeildinni á dögunum.

Sociedad gat leyft sér að hvíla marga lykilmenn fyrir þessa viðureign enda töluvert slakari andstæðingur.

Ander Barrenetxea, sem hefur verið inn og út úr byrjunarliði Sociedad á þessu tímabili, skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö í leiknum.

Sergio Gomez, Jon Magunazelaia Argoitia og Mikel Goti Lopez komust einnig á blað.

Spænski framherjinn Alvaro Montejo, sem lék með Fylki, Hugin, ÍBV og Þór, var í hópnum hjá Jove og kom við sögu þegar hálftími var eftir.

Montejo fór frá Íslandi árið 2021 og hélt þá aftur heim til Spánar. Hann hefur verið iðinn við kolann á þessu tímabili með Jove, en hann er með fimm mörk í fjórum deildarleikjum.

Hann náði ekki að koma sér á blað í kvöld, ekkert frekar en aðrir liðsfélagar hans og auðveldur sigur Sociedad staðreynd, sem er komið áfram í 2. umferð.

Dregið verður í 3. umferð 27. nóvember næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner