Íslendingaliðin Preston North End og Blackburn Rovers gerðu markalaust jafntefli í eina leik dagsins í Championship deildinni.
Stefán Teitur Þórðarson var ónotaður varamaður í liði Preston á meðan Arnór Sigurðsson var ekki í hóp hjá Blackburn.
Bæði lið misstu mann af velli með rautt spjald í leiknum og ætlaði allt að sjóða upp úr á lokamínútunum þegar Owen Beck fékk að líta beint rautt spjald í liði gestanna frá Blackburn.
Beck var rekinn af velli fyrir að sparka í leikmann Preston en Svartfellingurinn stóri Milutin Osmajic var bálreiður og brást mjög illa við. Osmajic greip í Beck og beit hann til að hefna liðsfélaga síns.
Beck reyndi að sannfæra dómarateymið um að hafa verið bitinn en Osmajic fékk gult spjald fyrir sinn þátt. Miklar líkur eru á að hann verði dæmdur í langt leikbann þegar aganefnd tekur málið fyrir.
Preston v Blackburn: Milutin Osmajic bites Owen Beck's neck - Referee gives Beck a red card for retaliation 90'
byu/OptimusCloyster insoccer
Athugasemdir