Liverpool horfir til Þýskalands, nýir eigendur Everton eru hrifnir af Southgate og Leeds ætlar að stækka heimavöll sinn
   þri 24. september 2024 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gæti verið síðasta púslið í ákvörðun Alexander-Arnold
Trent Alexander-Arnold.
Trent Alexander-Arnold.
Mynd: EPA
Spænska stórveldið Real Madrid hefur mikinn áhuga á því að fá hægri bakvörðinn Trent Alexander-Arnold frá Liverpool.

Samningur Alexander-Arnold rennur út næsta sumar og enn bólar ekkert á því að hann muni framlengja.

Glen Johnson, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að það sé heillandi tilhugsun fyrir Alexander-Arnold að fara til Real Madrid og þar sé leikmaður sem gæti hjálpað mikið til við að sannfæra hann.

„Félagið sjálft hefur rosalega mikið aðdráttarafl en ef hann talar við Jude (Bellingham) og hann segir honum hversu frábært þetta er, þá gæti það auðveldað honum að taka lokaákvörðun," segir Johnson.

„Við vitum það alveg að ef Real Madrid hringir, þá vilja flestir leikmenn fara þangað. Jude gæti verið síðasta púslið fyrir Trent að taka ákvörðun sína."

Bellingham er ein stærsta stjarna Real Madrid en hann og Alexander-Arnold eru góðir vinir úr enska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner