Liverpool horfir til Þýskalands, nýir eigendur Everton eru hrifnir af Southgate og Leeds ætlar að stækka heimavöll sinn
banner
   þri 24. september 2024 11:00
Brynjar Ingi Erluson
Ter Stegen fékk kveðju frá Courtois - „Sársaukafullt að sjá þig yfirgefa völlinn á þennan hátt“
Mynd: EPA
Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, vonast til þess að sjá kollega sinn hjá Barcelona, Marc-Andre Ter Stegen á vellinum sem allra fyrst.

Ter Stegen sleit krossband í leik Barcelona og Villarreal um helgina og er ljóst að hann verður frá út tímabilið.

Þetta eru meiðsli sem Courtois þekkir allt of vel, en hann sleit einmitt krossband á síðasta ári og missti af stærstum hluta tímabilsins.

Belgíski markvörðurinn var leiður yfir fregnunum af Ter Stegen og fann sig knúinn til að senda honum skilaboð og óska honum skjóts og góðs bata.

„Mér þykir leitt að þú hafir meiðst. Það er virkilega sársaukafullt að sjá þig yfirgefa völlinn á þennan hátt. Vona innilega að þú náir þér sem fyrst svo við fáum að sjá þig aftur í markinu,“ skrifaði Courtois til Ter Stegen.
Athugasemdir
banner
banner