Stjarnan heimsótti Val í kvöld þegar Besta deildin hélt áfram göngu sinni eftir skiptingu og var þetta í fyrstu umferð efri hluta.
Stjarnan byrjuðu af krafti og leiddu í hálfleik en Valsmenn komu til baka í síðari og jafntefli varð niðurstaðan.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 2 Stjarnan
„Ég held að við séum allir frekar svekktir með að hafa verið komnir með þetta góð tök á leiknum og yfirburðirnir svakalegir í fyrri hálfleik. Við vissum að þeir myndu koma passívt inn í leikinn og við nýttum okkur það og vorum mjög öflugir." Sagði Jökull I. Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar erftir leikinn í kvöld.
„Þegar þeir stigu upp á okkur í seinni þá er eins og við höfum orðið eitthvað aðeins tens en ég á eftir að skoða það betur. Kannski bara aðalega ósáttur við þessi mörk sem við fáum á okkur. Ég held að við viljum gera betur í þeim."
„Mér finnst seinni hálfleikurinn vera kannski frekar jafn. Við fáum færi líka og leikurinn breytist líka við það að þeir stígi upp og við áttum svo sem von á því. Þetta var opin leikur í báða enda og auðvitað fá þeir betri færi og nýta það og auðvitað bara breytist það að þeir þurftu að fara sækja og við hefðum kannski viljað nýta þá stöðu betur."
Evrópubaráttan er orðin mun harðari núna eftir að ljóst varð að fjórða sætið gæti ekki lengur sæti í Evrópu.
„Það er ekkert meira svekkjandi útaf því [að missa leikinn í jafntefli]. Við vildum vinna þennan leik og frammistaðan var bara svo góð. Sérstaklega í fyrri hálfleik og mér fannst að liðið átti skilið eitthvað út úr þessu meira. Það er mest svekkjandi."
Nánar er rætt við Jökul Elísabetarson í spilaranum hér fyrir ofan.
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Breiðablik | 23 | 16 | 4 | 3 | 55 - 28 | +27 | 52 |
2. Víkingur R. | 22 | 15 | 4 | 3 | 56 - 23 | +33 | 49 |
3. Valur | 23 | 11 | 6 | 6 | 55 - 35 | +20 | 39 |
4. Stjarnan | 23 | 10 | 5 | 8 | 42 - 37 | +5 | 35 |
5. ÍA | 23 | 10 | 4 | 9 | 41 - 33 | +8 | 34 |
6. FH | 22 | 9 | 6 | 7 | 39 - 38 | +1 | 33 |