Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo var ekki í hópnum hjá sádi-arabíska félaginu Al Nassr sem vann Al Hazem, 2-1, í bikarnum í kvöld.
Stefano Pioli, nýr þjálfari Al Nassr, tók ákvörðun um að hvíla Ronaldo í leiknum.
Sadio Mane skoraði fyrra mark Al Nassr en heimamenn jöfnuðu þegar hálftími var eftir af leiknum.
Sádi-arabíski leikmaðurinn Nawaf Mashari Abdulrahman Boushal gerði sigurmark Al Nassr þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og kom sínu liði í 16-liða úrslit.
Athugasemdir