Þýski landsliðsmarkvörðurinn Marc-André ter Stegen verður frá keppni næstu mánuðina vegna slæmra hnémeiðsla sem hann hlaut í stórsigri Barcelona gegn Villarreal í spænska boltanum í dag.
Ter Stegen meiddist í uppbótartíma fyrri hálfleiks í stöðunni 1-2 fyrir Barca og kláraði Inaki Pena leikinn á milli stanganna í hans stað.
Meiðslin líta afar út við fyrstu sýn og er búist við því að markvörðurinn verði frá keppni út árið hið minnsta.
Spænski fréttamaðurinn Javi Miguel segir að tímabilið hjá Ter Stegen sé mögulega búið. Miguel segir Barca óttast að markvörðurinn sé með rofna sin í hnéskel.
La reacción de Ter Stegen al ver su rodilla. ???????????? pic.twitter.com/NoZeAZpk9V
— Diari Culé (@diaricule_1899) September 22, 2024
Athugasemdir