Rúnar Páll var sáttur með frammistöðu sinna manna en svekktur með úrslitin í 2-0 tapi gegn Fram fyrr í kvöld á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 0 Fylkir
„Mjög svekkjandi miðað við hvernig leikurinn spilaðist og þróaðist, mér fannst þetta algjörir yfirburðir frá A til Ö. Við fáum lítið fyrir það stigalega en kannski sjálfstraust fyrir framhaldið spilanlega séð.''
„Við verðum að fá þennan kraft og þennan dugnað, og ekki vera að gefa þessi mörk. Mér fannst við spila þennan leik feykilega vel í dag og rosalegur kraftur í okkur og vilji, en við fengum ekkert út úr þessum leik.'
„Við fáum núna fjóra sénsa í viðbót til þess að fá stig og meðan liðin í kringum okkur vinna ekki leiki erum við með í baráttunni.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en þar fer Rúnar nánar út í leikinn og baráttuna framundan.