City og Real keppa um Musiala - Newcastle vill Calvert-Lewin - Gyökeres eftirsóttur af enskum félögum
   mán 23. september 2024 10:20
Elvar Geir Magnússon
Freyr einn af fjórum sem BBC orðar við stjórastarf Cardiff
Freyr er sterklega orðaður við Cardiff.
Freyr er sterklega orðaður við Cardiff.
Mynd: BBC
Breska ríkisútvarpið veltir því fyrir sér hver verði næsti stjóri enska B-deildarliðsins Cardiff City eftir að Erol Bulut var látinn taka pokann sinn.

Cardiff er á botninum í Championship með aðeins eitt stig en Omar Riza fær það hlutverk að stýra liðinu í næstu leikjum á meðan félagið leitar að nýjum stjóra.

Freyr Alexandersson er einn af þeim sem er sterklega orðaður við starfið en hann hefur skapað sér gott orð fyrir að bjarga bæði Lyngby og Kortrijk úr ómögulegum stöðum. Hann stýrir nú Kortrijk sem er eins og Cardiff í eigu malasíska viðskiptamannsins Vincent Tan.

Freyr er nefndur hjá fleiri fjölmiðlum, þar á meðal Wales Online, sem vitnar í viðtal við Fótbolta.net fyrr á árinu þar sem Freyr viðurkenndi að hafa áhuga á að verða stjóri Cardiff. Hann hefur áður talað um það sem draum sinn að fara í enska boltann.

BBC nefnir fjóra mögulega kosti fyrir Cardiff. Auk Freys eru það James Rowberry aðstoðarlandsliðsþjálfari Wales, Steven Schumacher sem var rekinn frá Stoke í síðustu viku og Nathan Jones fyrrum stjóri Luton og Southampton en hann er uppalinn hjá Cardiff. Jones er stjóri Charlton í dag.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 West Brom 6 5 1 0 10 2 +8 16
2 Sunderland 6 5 0 1 13 4 +9 15
3 Burnley 6 4 1 1 13 4 +9 13
4 Sheffield Utd 6 4 2 0 9 3 +6 12
5 Blackburn 6 3 3 0 12 6 +6 12
6 Leeds 6 3 2 1 9 4 +5 11
7 Swansea 6 3 1 2 7 4 +3 10
8 Watford 6 3 1 2 10 9 +1 10
9 Oxford United 6 3 0 3 10 8 +2 9
10 Derby County 6 3 0 3 8 7 +1 9
11 Norwich 6 2 2 2 8 7 +1 8
12 Middlesbrough 6 2 2 2 6 5 +1 8
13 Bristol City 6 2 2 2 8 12 -4 8
14 QPR 6 1 4 1 8 9 -1 7
15 Luton 6 2 1 3 5 8 -3 7
16 Hull City 6 1 3 2 5 7 -2 6
17 Stoke City 6 2 0 4 4 9 -5 6
18 Millwall 6 1 2 3 9 9 0 5
19 Coventry 6 1 2 3 6 8 -2 5
20 Plymouth 6 1 2 3 5 10 -5 5
21 Preston NE 6 1 2 3 3 9 -6 5
22 Sheff Wed 6 1 1 4 6 12 -6 4
23 Portsmouth 6 0 3 3 7 13 -6 3
24 Cardiff City 6 0 1 5 1 13 -12 1
Athugasemdir
banner
banner