Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München unnu öruggan 5-1 sigur á Hoffenheim í þriðju umferð þýsku deildarinnar í kvöld.
Danska landsliðskonan Pernille Harder skoraði þrennu fyrir Bayern, en þær Georgia Stanway og Sydney Lohmann komust einnig á blað fyrir þýska meistaraliðið.
Glódís, sem er fyrirliði liðsins, lék allan leikinn í hjarta varnarinnar, en Bayern hefur unnið alla þrjá leiki sína í deildinni.
TItilvörnin hefst nokkuð vel en liðið hefur skorað 13 mörk og fengið á sig þrjú mörk.
Næsti leikur Bayern er gegn Werder Bremen á heimavelli en hann fer fram á sunnudag.
Athugasemdir