Adam Ægir Pálsson kom ekkert við sögu hjá Perugia sem gerði markalaust jafntefli við Pescara í C-deildinni á Ítalíu í kvöld.
Hann gekk í raðir Perugia á láni frá Val í sumar og hefur komið við sögu í fimm af sjö leikjum liðsins.
Adam var í annað sinn ónotaður varamaður hjá Perugia í kvöld, sem er með aðeins sex stig úr fimm leikjum.
Óttar Magnús Karlsson lék þá síðasta hálftímann er Spal vann Carpi, 2-1.
Framherjinn meiddist í byrjun tímabils og missti af tveimur leikjum. Þá var hann ónotaður varamaður í síðasta leik.
Þetta var þriðji leikur Óttars, sem kom til Spal frá Venezia í sumar, en liðið er í 16. sæti með 4 stig.
Athugasemdir