Stórlið Al Ahli er óvænt úr leik í sádi-arabíska bikarnum eftir að hafa tapað fyrir B-deildarliði Al Jandal, 2-1.
Al Ahli er eitt af fjórum félögum sem eru í eigu PIF (ríkissjóð Sádi-Arabíu).
Roberto Firmino, Gabri Veiga, Roger Ibanez, Merih Demiral og Ivan Toney voru allir í byrjunarliði Al Ahli í kvöld.
Liðið lenti tveimur mörkum undir á sex mínútna kafla í fyrri hálfleik, en Toney náði að klóra í bakkann á 82. mínútu.
Lengra komst Al Ahli ekki sem er úr leik í bikarnum þetta árið.
Ivan Toney réduit l’écart sur un tir contré !
— SPL ???????? (@ActuSPL) September 23, 2024
Il reste plus de 8 minutes à Al Ahli pour égaliser ou arracher la victoire sinon c’est les prolongations !
Al Ahli 1 - 2 Al Jandal (D2)
????1/16 de finale de la Coupe du Roi ????????
pic.twitter.com/EUCYJlZGlU
Athugasemdir