Það er passað vel upp á hvað Scott McTominay lætur ofan í sig hjá Napoli. Það kemur ekki á óvart enda er stjórinn Antonio Conte frægur fyrir að láta passa upp á mataræði leikmanna sinna.
Skoski miðjumaðurinn McTominay, sem kom frá Manchester United í sumar, er sagður undir sérstöku eftirliti og fær leiðbeiningar með heim af æfingum um hvað hann megi borða og hvað ekki.
Skoski miðjumaðurinn McTominay, sem kom frá Manchester United í sumar, er sagður undir sérstöku eftirliti og fær leiðbeiningar með heim af æfingum um hvað hann megi borða og hvað ekki.
Það má finna margar freistingar í ítalskri matargerð og í Napoli er meðal annars gott úrval af ís, pizzum, pasta og ostum.
Conte er þekktur fyrir að ná því besta út úr Romelu Lukaku og það er meðal annars vegna þess hversu gaumgæfilega hann passar upp á mataræði belgíska sóknarmannsins.
Hjá Napoli hefur hann fengið til sína næringarsérfræðinga til að passa upp á mataræði leikmanna.
Napoli fer ágætlega af stað í ítölsku A-deildinni og situr í öðru sæti.
Athugasemdir