Real Madrid vill Guehi - Arsenal á undan Juve í baráttu um Calafiori - De Ligt hefur áhuga á að fara til Man Utd
   mán 01. júlí 2024 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
EM spáin - Leikur fyrir sögubækurnar
Heilagur Ronaldo.
Heilagur Ronaldo.
Mynd: EPA
Gunni Birgis og Jói Ástvalds spá í leikina.
Gunni Birgis og Jói Ástvalds spá í leikina.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Benjamin Sesko, sóknarmaður Slóveníu.
Benjamin Sesko, sóknarmaður Slóveníu.
Mynd: Getty Images
Sextán liða úrslitin á EM í Þýskalandi halda áfram í dag en Cristiano Ronaldo og Kylian Mbappe verða í eldlínunni. Seinni leikur dagsins hefst klukkan 19:00 þegar Portúgal mætir Slóveníu.

Spámenn Fótbolta.net eru Gunnar Birgisson og Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, en þeir hafa báðir verið frábærir í umfjöllun í kringum mótið. Þeir spá um úrslit allra leikja í útsláttarkeppninni ásamt fulltrúa Fótbolta.net. Fyrir hárréttar lokatölur fást 3 stig en 1 stig ef rétt tákn er á leiknum.

Gunnar Birgisson

Portúgal 3 - 2 Slóvenía
Þetta er áhugaverð rimma, ég segi alltaf, aldrei vanmeta Slóvenana. Þetta mót hefur verið með þessum skemmtilega austur evrópska blæ og Slóvenarnir setja Portúgal í erfiða stöðu þegar þeir komast 2-0 yfir í fyrri hálfleik. Fernandes jafnar fyrir Portúgali þegar skammt er eftir og Leao skorar sigurmarkið í framlengingu. Leikur fyrir sögubækurnar.

Jóhann Páll Ástvaldsson

Portúgal 3 - 0 Slóvenía
Slóvenar eiga ekki roð í þá. Oblak sér til þess að það verði ekki algjört markaflóð. Martinez sýndi titlanef sitt með Wigan 2013 og þú tekur það aldrei af honum. Portúgal eru til alls líklegir þrátt fyrir að allir leikmenn liðsins sjái BARA draumasendingar til CR7.

Sesko á skot í stöng en Slóvenar komast ekki nær. Luka Doncic verður myndaður að taka eitthvað kóngaspjall við Kristinn Rögnvald

Fótbolti.net - Elvar Geir Magnúss

Portúgal 3 - 2 Slóvenía
Vinnusamir og gíraðir Slóvenar munu á endanum þurfa að lúta í lægra haldi gegn sóknarmönnum portúgalska liðsins. Ronaldo skorar langþráð mark.

Staðan:
Fótbolti.net - 6 stig
Gunni Birgis - 6 stig
Jói Ástvalds - 3 stig
Athugasemdir
banner
banner