Albert Guðmundsson átti stórkostlegt tímabil með Genoa á Ítalíu á síðasta tíambili og hefur vakið athygli margra sterkra liða.
Hann hefur meðal annars verið orðaður við ítölsku meistarana í Inter en Giuseppe Marotta forseti félagsins segir ekki þörf á sóknarmanni.
„Við vitum öll að Albert er góður leikmaður en sóknin okkar er góð eins og er. Við erum að vinna í því að fá markmann," sagði Marotta í samtali við Sky Sports á Ítalíu.
Talið er að dyrnar gætu opnast fyrir Albert ef Joaquin Correa eða Marko Arnautovic fari frá félaginu.
Markmaðurinn sem Marotta talaði um er Josep Martinez samherji Alberts hjá Genoa.
Athugasemdir