Hollenska markamaskínan Vivianne Miedema er við það að ganga í raðir Manchester City.
Þetta kemur fram á Sky Sports.
Þetta kemur fram á Sky Sports.
Miedema gekk í raðir Arsenal frá Bayern München árið 2017 og hefur síðan þá skorað 125 mörk í 172 leikjum. Hún hefur einnig lagt upp 50 mörk.
Hún er markahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildar kvenna á Englandi.
Hin 27 ára gamla Miedema kom til baka úr erfiðum meiðslum á síðasta tímabili en það er sterkt fyrir Man City að landa henni.
Athugasemdir