Bradley Carnell hefur verið rekinn sem þjálfari St. Louis City í bandarísku MLS deildinni.
Carnell var ráðinn þjálfari liðsins í janúar 2022 en hann fékk Nökkva Þeyr Þórisson til liðs við sig einu og hálfu ári síðar.
Liðið vann deildakeppnina í Vesturdeildinni á síðustu leiktíð en nú hefur Carnell verið látinn taka pokann sinn þar sem liðið er aðeins með 19 stig eftir 20 leiki.
Nökkvi hefur leikið 16 leiki á þessari leiktíð en hann skoraði sitt fyrsta mark um helgina þegar hann klóraði í bakkann í 3-2 tapi gegn Vancouver sem reyndist vera banabiti Carnell.
Athugasemdir