Frakkland 1-0 Belgía
1-0 Jan Vertonghen ('85 , sjálfsmark)
Frakkar eru komnir áfram í 8-liða úrslit EM eftir sigur á Belgiu í dag.
Þeteta var ansi bragðdaufur leikur í fyrri hálfleik þar sem hvorugu liðinu tókst að skapa sér almennileg færi.
Frakkar hófu seinni hálfleikinn betur en Belgar unnu sig inn í hann og Kevin De Bruyne hefði getað komið Belgum yfir en Mike Maignan í marki Frakka varði vel frá honum.
Það stefndi allt í framlengingu þegar Randall Kolo Muani átti misheppnað skot sem fór hins vegar af Jan Vertonghen og í netið. Það reyndist sigurmarkið svo Frakkar eru komnir áfram en Belgar sitja eftir með sárt ennið.
Svona fara ????????Frakkar í 8-liða úrslit. Sjálfsmark á 85. mínútu gegn ????????Belgum?? pic.twitter.com/hv7TeMlY7p
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 1, 2024
Athugasemdir