Bayern Munchen hefur náð munnlegu samkomulagi við Xavi Simons um að hann gangi til liðs við félagið.
Þýska félagið leggur mikið kapp í að reyna að fá hollenska landsliðsmanninn til liðs við sig en félagið er í viðræðum við PSG um kaup og kjör.
Simons hefur úr fleiri kostum að velja þar sem RB Leipzig hefur einnig áhuga á honum.
Hann var á láni hjá Leipzig frá PSG á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 10 mörk í 43 leikjum.
Athugasemdir