16-liða úrslitunum á EM í Þýskalandi lýkur í dag með tveimur leikjum.
Rúmenía vann E-riðilinn mjög óvænt en liðið bjóst þá sennilega ekki við því að mæta Hollandi í 16-liða úrslitunum en það voru vonbrigði þar á bæ að lenda í 3. sæti í D-riðli.
Seinni leikur dagsins er síðan Austurríki gegn Tyrklandi.
Austurríki vann óvænt D-riðilinn með því að leggja Holland af velli í lokaumferðinni. Tyrkland hafnaði í 2. sæti á eftir Portúgal í F-riðli.
þriðjudagur 2. júlí
16:00 Rúmenía - Holland
19:00 Austurríki - Tyrkland
Athugasemdir